Hoppa yfir valmynd
22. desember 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn

Árið 2007 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum nokkrir ferðastyrkir.

Árið 2007 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum nokkrir ferðastyrkir. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.

Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík og á skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi, Box 127 07, S-112 94 Stockholm. Umsóknareyðublöð er einnig að finna á vefslóðinni norden.se. Umsóknir skulu sendar á skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi. Umsóknir skal stíla á stjórn Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins/Svensk-isländska samarbetsfonden.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2007. Styrkjunum verður úthlutað í mars.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum