Hoppa yfir valmynd
12. janúar 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing um styrki til námskeiða í íslensku

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar.

Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að hafa samning við hæfan fræðsluaðila er annast kennsluna.

Umsækjandi skal veita menntamálaráðuneyti upplýsingar um markmið námsins, námsefni, kennslustundafjölda, kennslutíma, aðstöðu til kennslu, námskeiðskostnað og fjármögnun.
Þá skal og veita upplýsingar um kennara, menntun hans, hæfni og starfsreynslu. Að námskeiði loknu, áður en til lokagreiðslu styrks kemur, ber að senda inn lista með nöfnum og kennitölum nemenda sem sóttu námskeiðið og ber þá að taka mið af þeim sem mættu í 80% kennslustunda að lágmarki. Ráðuneytið áskilur sér rétt til að kalla eftir frekari upplýsingum er varða rekstur og faglega framkvæmd námskeiðahalds.

Styrkjum er úthlutað tvisvar til þrisvar á ári eftir atvikum.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.
Umsóknareyðublöð og nauðsynlegar upplýsingar eru aðgengilegar undir flokknum sjóðir og eyðublöð á vef menntamálaráðuneytis: menntamalaraduneyti.is. Umsóknir skal senda á [email protected].

Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2007.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum