Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Starf bókasafns- og upplýsingafræðings á upplýsinga- og þjónustusviði

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf bókasafns- og upplýsingafræðings á upplýsinga- og þjónustusvið.

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf bókasafns- og upplýsingafræðings á upplýsinga- og þjónustusvið. Um er að ræða fullt starf á skjala- og bókasafni sem felst m.a. í umsjón með skráningu skjala í GoPro skjalastjórnarkerfið, umsjón með geymsluskrá, upplýsingaþjónustu við starfsfólk og viðskiptavini ráðuneytisins, auk þjálfunar og kennslu.

Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af notkun GoPro skjalastjórnarkerfisins er kostur.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri upplýsinga- og þjónustusviðs.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 5. febrúar 2007.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum