Hoppa yfir valmynd
3. ágúst 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sérfræðingur á sviði íþróttamála

Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2007.

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á sviði íþróttamála. Um er að ræða fullt starf.

Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi með reynslu og þekkingu á sviði íþróttamála. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli og þekking á nýtingu upplýsingatækni eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Rakel Björnsdóttir skrifstofu yfirstjórnar í menntamálaráðuneyti.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2007.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum