Hoppa yfir valmynd
11. september 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Doktorsnám við EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu

Umsóknarfrestur er 17. desember 2007.

Ísland er aðili að EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu. EMBL (www.embl.org ) býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og geta Íslendingar því sótt um námsdvöl við stofnunina. Nemendur sem teknir eru inn í námið fá framfærslustyrk á meðan á námi stendur og er öll aðstaða til fyrirmyndar, m.a. góð aðstaða fyrir fjölskyldufólk og leikskóli á staðnum. Stofnunin er í fremstu röð á sínu sviði. Þeir sem lokið hafa eins til tveggja ára rannsóknatengdu framhaldsnámi (MS eða fjórða árs verkefni) í sameindalíffræði eða skyldum greinum, að loknu BS prófi, eru hvattir til að kynna sér doktorsnám við EMBL og tilhögun þess og senda inn umsókn.

Umsóknarfrestur er 17. desember 2007. Allar upplýsingar um námið er að finna á vefsíðunni http://www.embl.org/training/phdprogramme/index.html. Einungis er tekið við umsóknum á netinu. Frekari fyrirspurnir má senda til [email protected].

Einnig má hafa samband við Rebekku Valsdóttur ([email protected]) eða Eirík Steingrímsson ([email protected]).



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum