Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Starf sérfræðings á fjármálasviði

Umsóknarfrestur er til 18. desember 2007

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á sviði eignaumsýslu á fjármálasviði. Starfið er fjölþætt og felur í sér umsjón með samskiptum ráðuneytisins við Fasteignir ríkissjóðs og Framkvæmdasýslu ríkisins, samningagerð og verkefni tengd þarfagreiningum, útboðum og einkaframkvæmd á vegum ráðuneytisins. Um er að ræða fullt starf.

Leitað er að einstaklingi með háskólapróf í verkfræði, tæknifræði, arkitektúr eða með sambærilega menntun. Mikilvægt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu á sviði útboða og samningagerðar. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, hæfni í mannlegum samskiptum og góða kunnátta í íslensku, auk færni í ensku og einu norðurlandamáli.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri upplýsinga- og þjónustusviðs.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 18. desember 2007.

Umsóknir um starfið gilda í sex mánuði.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum