Hoppa yfir valmynd
4. janúar 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Laust embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands

Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík fyrir kl. 16:00, föstudaginn 1. febrúar 2008

Embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands er laust til umsóknar.

Samkvæmt 17. gr. laga um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra, nr. 86/1998, skal skólameistari hafa kennsluréttindi á framhaldsskólastigi.

Menntamálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni tillögu hlutaðeigandi skólanefndar, skv. 2. mgr. 11. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 80/1996 og 5. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum. Gert er ráð fyrir því að skipað verði í embættið frá og með 1. mars nk., eða síðar, eftir nánari samkomulagi.

Um laun skólameistara fer eftir ákvörðun kjararáðs, sbr. lög um kjararáð, nr. 47/2006.

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík fyrir kl. 16:00, föstudaginn 1. febrúar 2008. Nánari upplýsingar veitir Kristín Jónsdóttir, skrifstofustjóri upplýsinga- og þjónustusviðs.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum