Hoppa yfir valmynd
18. janúar 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þróunarsjóður grunnskóla 2008

Umsóknir skulu hafa borist Símenntun Rannsóknum Ráðgjöf - SRR fyrir kl. 16:00 mánudaginn 3. mars 2008

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna í grunnskólum skólaárið 2008-2009 á eftirtöldum sviðum:

A. Heildarskipulag kennsluhátta og samfella milli skólastiga
Auglýst er eftir umsóknum þar sem skólar leggja fram áætlun um þróun kennsluhátta á ákveðnum sviðum eða aldursstigum, með fjölbreytni að leiðarljósi. Sóst er eftir verkefnum þar sem lögð er áhersla á samfellu milli skólastiga, annars vegar leik- og grunnskóla og hins vegar grunn- og framhaldsskóla. Einnig samfellu innan grunnskóla.

B. Önnur forgangssvið:

  • Skapandi hugsun, samstarf, jafnrétti og lýðræði í skólastofunni
    Óskað er eftir verkefnum þar sem beitt er ýmis konar aðferðum við að örva skapandi hugsun nemenda með samstarf jafnrétti og lýðræði að leiðarljósi.
  • Umhverfisvitund og sjálfbær þróun
    Óskað er eftir verkefnum sem nýtast megi skólum og íslensku samfélagi til að styrkja menntun til sjálfbærrar þróunar, með áherslu á að skapa virðingu fyrir náttúru og mannlífi.

Einkum er leitað eftir þróun á aðferðum við kennslu sem geta nýst öðrum skólum.

C. Önnur þróunarverkefni
Unnt er að sækja um styrki til hvers kyns þróunarverkefna en svið A og B njóta forgangs að öðru jöfnu.

Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf - SRR í Kennaraháskóla Íslands annast umsýslu með sjóðnum og veitir nánari upplýsingar, rannsokn.khi.is/upplysingavefur, netfang [email protected] .
Reglur um sjóðinn og ýmsar aðrar upplýsingar er einnig þar að finna og á vef menntamálaráðuneytis, menntamalaraduneyti.is.

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi. Rafræn umsóknareyðublöð og upplýsingar um fylgigögn eru aðgengilegar á vef Símenntunar Rannsókna Ráðgjafar SRR, rannsokn.khi.is/upplysingavefur/

Umsóknir skulu hafa borist Símenntun Rannsóknum Ráðgjöf - SRR fyrir kl. 16:00 mánudaginn 3. mars 2008.

Menntamálaráðuneyti, 17. janúar 2008.
menntamalaraduneyti.is



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum