Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms í Danmörku

Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2008

Stjórnvöld í Danmörku bjóða fram fjóra styrki til handa Íslendingum til háskólanáms í Danmörku skólaárið 2008-2009. Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem komnir eru nokkuð áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir við 9 mánaða námsdvöl en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir. Styrkfjárhæðin er 5.000 d.kr. á mánuði.

Frestur til að skila inn umsóknum, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, er hér með framlengdur til 15. febrúar nk. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Einnig fást upplýsingar og eyðublöð á vef CIRIUS í Danmörku



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum