Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing um styrki til að semja próf í lestrarfærni fyrir grunnskólanemendur

Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til að semja lestrarpróf fyrir grunnskólanemendur.

Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til að semja lestrarpróf fyrir grunnskólanemendur. Styrkja á gerð prófa sem miða að því að mæla lesskilning, lestrarhraða og/eða getu til að nýta lestrarfærni hjá nemendum í 1. - 10. bekk.

Í umsóknum skal gefa ítarlegar upplýsingar um markmið með prófinu, áætluð verklok, fyrirhugaða útgáfu og dreifingu. Einnig þarf að fylgja umsókn sundurliðuð kostnaðaráætlun þar sem m.a. koma fram upplýsingar um aðra styrki eftir því sem við á.

Umsóknarfrestur er til 13. júní 2008.

Nánari upplýsingar veitir Erna Árnadóttir í síma 545-9500 eða í tölvupósti á [email protected]




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum