Hoppa yfir valmynd
18. júlí 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norrænir starfsmenntunarstyrkir 2008-2009

Menntamálaráðuneyti Noregs veitir á námsárinu 2008-2009 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í Noregi. Frestur til að skila inn umsóknum, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, er hér með framlengdur til 20. ágúst nk.

Menntamálaráðuneyti Noregs veitir á námsárinu 2008-2009 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í Noregi. Styrkirnir, sem nema 20.000 n.kr. hver, eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi. Einnig er gert ráð fyrir að sams konar styrkir verði í boði til náms í Svíþjóð á árinu 2009.

Frestur til að skila inn umsóknum, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, er hér með framlengdur til 20. ágúst nk. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á vef ráðuneytisins menntamalaraduneyti.is.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum