Hoppa yfir valmynd
2. október 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr tónlistarsjóði

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði, samkvæmt lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004, til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu janúar til ágúst 2009.
tónlist
nota

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði samkvæmt lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004, til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu janúar til ágúst 2009. Næst verður auglýst eftir umsóknum í maí 2009 vegna verkefna á síðari hluta árs 2009.

Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins, úthlutunarreglur, umsóknir og mat á þeim eru á vef mennamálaráðuneytis.

Lögð er áhersla á að umsóknir og fylgigögn með þeim berist menntamálaráðuneyti áður en umsóknarfrestur rennur út. Að öðrum kosti eru þær ekki teknar til umfjöllunar. Minnt er á að styrkþegar úr fyrri úthlutunum þurfa að hafa skilað inn greinargerð vegna þeirra verkefna áður en nýjar umsóknir eru teknar til umfjöllunar.

Gert er ráð fyrir að afgreiðsla umsókna taki um tíu vikur frá auglýstum skilafresti. Við mat á umsóknum er m.a. tekið tillit til listræns gildis og mikilvægis verkefnis fyrir almenna tónlistarstarfsemi og eflingu íslenskrar tónlistar, gildi og mikilvægis verkefnis fyrir kynningu og markaðssetningu íslenskrar tónlistar, starfsferils, faglegs og/eða listræns bakgrunns umsækjanda og fjárhagsgrundvallar verkefnisins.

  • Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneyti eða á vef þess: menntamalaraduneyti.is
  • Umsóknir skulu vera í þríriti og öll eintök undirrituð. Ekki er tekið við umsóknum rafrænt.
  • Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 3. nóvember 2008.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum