Hoppa yfir valmynd
24. október 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr þróunarsjóði námsgagna

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði námsgagna.

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði námsgagna.
Hlutverk þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.

  • Þróunarsjóður námsgagna starfar samkvæmt lögum um námsgögn nr. 71/2007 og reglugerð um sjóðinn nr. 1268/2007.
  • Umsóknarfrestur er til 24. nóvember 2008.
  • Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi.

Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins, http://umsoknir.menntamalaraduneyti.is/

Aðgangur er gefinn á kennitölu og er lykilorð sent til viðkomandi á netfang sem gefið er upp við nýskráningu.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum