Hoppa yfir valmynd
21. nóvember 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkur til háskólanáms í Finnlandi

Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2009-2010.

Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2009-2010. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver styrkur kemur í hlut Íslendinga. Umsækjendur skulu hafa lokið BA- eða BS-prófi eða öðru sambærilegu prófi. Styrkir eru veittir til 3 - 9 mánaða og nemur styrkfjárhæðin 1200 evrum á mánuði. Upplýsingar og eyðublöð er hægt að nálgast á vefsíðu CIMO (Centret for International Mobility) http://finland.cimo.fi og í menntamálaráðuneytinu.

Menntamálaráðuneytið framsendir umsóknir er uppfylla skilyrði sem nánar eru tilgreind í upplýsingum um styrkina og skulu umsóknir, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, berast ráðuneytinu í síðasta lagi 1. janúar 2009.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum