Hoppa yfir valmynd
8. apríl 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr tónlistarsjóði

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði, samkvæmt lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004, til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu júlí til desember 2009.
tónlist
nota

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði, samkvæmt lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004, til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu júlí til desember 2009. Næst verður auglýst eftir umsóknum í október 2009 vegna verkefna á fyrri hluta árs 2010.

Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins, úthlutunarreglur, umsóknir og mat á þeim eru á vef mennamálaráðuneytisins.

Lögð er áhersla á að umsóknir og fylgigögn með þeim berist menntamálaráðuneyti áður en umsóknarfrestur rennur út. Að öðrum kosti eru þær ekki teknar til umfjöllunar. Minnt er á að styrkþegar úr fyrri úthlutunum þurfa að hafa skilað inn greinargerð vegna þeirra verkefna áður en nýjar umsóknir eru teknar til umfjöllunar.

Gert er ráð fyrir að umsóknir hljóti afgreiðslu tónlistarráðs innan átta vikna frá auglýstum skilafresti. Við mat á umsóknum er m.a. tekið tillit til listræns gildis og mikilvægis verkefnis fyrir almenna tónlistarstarfsemi og eflingu íslenskrar tónlistar, gildi og mikilvægis verkefnis fyrir kynningu og markaðssetningu íslenskrar tónlistar, starfsferils, faglegs og/eða listræns bakgrunns umsækjanda og fjárhagsgrundvallar verkefnisins.

  • Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneyti eða á vef þess: menntamálaráðuneyti.is
  • Umsóknir skulu vera í þríriti og öll eintök undirrituð.
  • Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 11. maí 2009.

Umsóknir skal senda á póstfangið: Menntamálaráðuneyti, tónlistarsjóður, Sölvhólsgötu 4, 150, Reykjavík.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum