Hoppa yfir valmynd
15. júní 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn haust 2009

Á haustmisseri 2009 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum nokkrir ferðastyrkir.

Á haustmisseri 2009 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum nokkrir ferðastyrkir. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.

Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík og á skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi, Box 127 07, S-112 94 Stockholm.

Umsóknareyðublöð er einnig að finna á vefslóðinni www.norden.se. Umsóknir skulu sendar á skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi.

  • Umsóknir skal stíla á stjórn Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins/Svensk-isländska samarbetsfonden.
  • Umsóknarfrestur er til 1. september 2009 og gildir póststimpill. Styrkjunum verður úthlutað í lok október.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum