Hoppa yfir valmynd
31. ágúst 2009 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Styrkir til háskólanáms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi

Boðnir eru fram eftirtaldir styrkir handa Íslendingum til náms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi á námsárinu 2010-2011.

Menntamálaráðuneytinu hefur borist tilkynning um að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir handa Íslendingum til náms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi á námsárinu 2010-2011:

  • Allt að fjórir styrkir til háskólanáms eða rannsóknarstarfa. Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum sem hafa lokið prófi sambærilegu við BA- eða BS-próf eftir 2003 eða kandídötum sem lokið hafa MA- eða MS-prófi eftir 2006. Styrkirnir eru ætlaðir til 10 - 24 mánaða námsdvalar. Einnig er boðið upp á styrki til 6 mánaða námsdvalar.
  • Allt að þrír styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið 2010. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi og leggja stund á nám í öðrum greinum en þýsku. Umsækjendur þurfa að hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu.
  • Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rannsóknarstarfa um allt að sex mánaða skeið og styrkir til fyrrverandi DAAD-styrkþega.

Styrkir fyrir nemendur í listgreinum.
Nánari upplýsingar fást í ráðuneytinu og á vef Deutscher Akademischer Austauschdienst (DAAD) http://www.daad.de/stipendien/de/index.de.html?
Einnig veitir Annika Grosse, lektor í þýsku í Háskóla Íslands (netfang: [email protected]) upplýsingar.
Eyðublöð fyrir umsóknir og fylgiskjöl með umsókn er hægt að nálgast á vef DAAD: http://www.daad.de/deutschland/download/03118.de.html

Umsóknir, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 6. október nk.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum