Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkur til háskólanáms í Kína skólaárið 2010-2011

Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins Kína bjóða fram styrk handa Íslendingum til háskólanáms í Kína námsárið 2010-2011.
Kinverski fáninn
Kinverski fáninn

Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins Kína bjóða fram styrk handa Íslendingum til háskólanáms í Kína námsárið 2010-2011. Umsækjendur um styrk til grunnnáms í háskóla skulu vera yngri en 25 ára og yngri en 35 ára ef þeir sækja um nám á meistarastigi.

  • Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í mennta- og menningarmálaráðuneyti svo og á vef CSC: www.csc.edu.cn/laihua
  • Umsóknarfrestur er til 15. mars 2010. Umsóknir skal senda til mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum