Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir vegna stuðnings við dönskukennslu 2010

Samkvæmt samningi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um stuðning við dönskukennslu á Íslandi leggur mennta- og menningarmálaráðuneyti Íslands árlega fram 6.0 milljónir króna til verkefna
Danski fáninn
Danski fáninn

Samkvæmt samningi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um stuðning við dönskukennslu á Íslandi leggur mennta- og menningarmálaráðuneyti Íslands árlega fram 6.0 milljónir króna til verkefna, sbr. 3. gr. samningsins. Er hér auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna í eftirtöldum málaflokkum:

Endurmenntunarnámskeið fyrir dönskukennara í grunn- og framhaldsskólum.
Námsefnisgerð í dönsku fyrir grunn- og framhaldsskóla. Námsefni sem felur í sér nýbreytni í dönskukennslu hefur forgang við úthlutun.
Rannsóknir og þróunarstarf á sviði náms og kennslu í dönsku sem erlends tungumáls.
Vitundarvakning um mikilvægi dönskukunnáttu fyrir Íslendinga.

Samstarfsnefnd sem skipuð er fulltrúum beggja landanna metur umsóknir og gerir tillögur um styrkveitingar.

  • Umsóknir skulu berast mennta- og menningarmálaráðuneyti í síðasta lagi föstudaginn 9. apríl nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og má jafnframt nálgast á vef ráðuneytisins, menntamálaráðuneyti.is.
  • Þar er einnig að finna samning menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur.
  • Nánari upplýsingar veitir Erna Árnadóttir, deildarsérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, sími 545 9500, netfang: [email protected].


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum