Hoppa yfir valmynd
11. júní 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norrænir starfsmenntunarstyrkir

Menntamálaráðuneyti Danmerkur og Noregs veita á námsárinu 2010-2011 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum.

Menntamálaráðuneyti Danmerkur og Noregs veita á námsárinu 2010-2011 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnnám eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í starfsmenntaskólum eða framhaldsnáms starfsmenntakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi. Styrkirnir eru miðaðir við 9 mánaða námsdvöl en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir. Fjárhæð styrks í Danmörku er 21.000 d.kr., Noregi 20.000 n.kr. Einnig er gert ráð fyrir að sams konar styrkir verði í boði til náms í Svíþjóð á árinu 2011.

Umsóknir um styrkina, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 30. júní 2010. Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu og á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum