Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr Æskulýðssjóði

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.

Við úthlutun úr Æskulýðssjóði fyrir árið 2011 verður lögð áhersla á umsóknir frá æskulýðsfélögum og æskulýðssamtökum um verkefni er fjalla um mannréttindafræðslu og lýðræðislega þátttöku ungmenna í samfélaginu svo og samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:
1. Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
2. Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
3. Nýjungar og  þróunarverkefni.
4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
 
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa né fasta viðburði í félagsstarfi svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa.
Mennta- og menningarmálaráðherra úthlutar styrkjum úr Æskulýðssjóði að fengnum tillögum stjórnar Æskulýðssjóðs.
Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og 1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni.
Í umsókn til Æskulýðssjóðs skulu koma fram upplýsingar um:

  •   nafn æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka
  •   nafn og heimilisfang umsækjanda
  •   heiti, lýsing og markmið verkefnis, ásamt kostnaðar- og tímaáætlun
  •   áætlaðan fjölda þátttakenda
  •   samstarfsaðila eftir því sem við á
  •   kennitölu og númer bankareiknings þess er styrkurinn á að leggjast inn á ef viðkomandi hefur fengið úthlutað styrk.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins á vefslóðinni https://umsokn.stjr.is/ Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda (ekki kennitölu æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka) og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu. Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.
Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja menntamálaráðuneytið undir flipanum Umsóknir. Þar er umsóknareyðublað fyrir Æskulýðssjóð. Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Umsækjendur geta fylgst með afgreiðslu umsókna sinna með því skrá sig inn á umsóknavefinn.

Nánari upplýsingar um Æskulýðssjóð veitir Valgerður Þórunn Bjarnadóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected]

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2011.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum