Hoppa yfir valmynd
2. febrúar 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr fornleifasjóði

 Fornleifasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum skv. 24. gr. þjóðminjalaga nr. 107/2001. Umsóknarfrestur er til 1.mars 2011.

Fornleifasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum skv. 24. gr. þjóðminjalaga nr. 107/2001. Úthlutunarreglur sjóðsins nr. 73/2004 eru birtar í Stjórnartíðindum og  á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis. Veittir verða styrkir til verkefna sem stuðla að varðveislu og rannsóknum á fornleifum og forngripum.  Á fjárlögum 2011 eru 17,2 milljónir til ráðstöfunar. Umsóknarfrestur er til 1.mars 2011.

Umsóknir, í fjórum eintökum, sendist:
Stjórn fornleifasjóðs, mennta og menningarmálaráðuneyti,
Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík

                                                   
Stjórn fornleifasjóðs 1. febrúar 2011

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum