Styrkir til náms í Japan
Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa íslenskum ríkisborgurum til iðntæknináms, grunnnáms á háskólastigi og framhaldsnáms á háskólastigi.
Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa íslenskum ríkisborgurum til iðntæknináms, grunnnáms á háskólastigi og framhaldsnáms á háskólastigi.
Sendiráð Japans á Íslandi mun sjá um að velja fyrsta úrtak umsækjenda. Lokaákvörðun verður síðan tekin af menntamálaráðuneyti Japans (MEXT).
Útfylltum umsóknum skal skila eigi síðar en föstudaginn 1. júlí 2011 til Sendiráðs Japans við Laugaveg 182, 6. hæð, 105 Reykjavík.
- Styrkur til náms í Japan (Iðntækninám)
- Styrkur til náms í Japan (grunnnám á háskólastigi)
- Styrkur til náms í Japan (framhaldsnám á háskólastigi)
Allar frekari upplýsingar eru veittar hjá:
Sendiráði Japans á Íslandi
- Sími: 510 8600
- Fax : 510 8605
- Tölvupóstur: [email protected]
- Heimasíða: http://www.is.emb-japan.go.jp/