Hoppa yfir valmynd
6. október 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sérfræðingur á skrifstofu menntamála

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í málefnum er einkum varða innritun í framhaldsskóla á skrifstofu menntamála. Um er að ræða fullt starf í eitt ár.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í málefnum er einkum varða innritun í framhaldsskóla á skrifstofu menntamála. Um er að ræða fullt starf í eitt ár.

Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun í náms- og starfsráðgjöf,   þekkingu á  íslensku framhaldsskólakerfi, þekkingu og reynslu af innritunarferli í framhaldsskóla og reynslu af samskiptum og ráðgjöf við nemendur og foreldra. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli og þekking á nýtingu upplýsingatækni, gagnagrunnum og upplýsingakerfum sem nýttir eru við innritun í framhaldsskóla eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins.
  • Nánari upplýsingar veitir Jens Pétur Hjaltested á upplýsinga- og fjármálasviði.
  • Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til 25. október 2011.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum