Hoppa yfir valmynd
31. október 2011 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Styrkir til háskólanáms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi

Stjórnvöld í Þýskalandi bjóða fram styrki handa Íslendingum til að stunda háskólanám og rannsóknastörf í Þýskalandi skólaárið 2012-2013. Frestur til að skila inn umsóknum framlengist hér með til 10. nóvember 2011.

Stjórnvöld í Þýskalandi bjóða fram styrki handa Íslendingum til að stunda háskólanám og rannsóknastörf í Þýskalandi skólaárið 2012-2013.  Auk styrkja til háskólanáms og rannsóknastarfa eru veittir styrkir til tungumálanáms, kynnisheimsókna, starfsþjálfunar á ákveðnum sviðum svo og eru veittir sérstakir styrkir til listamanna. Einnig eru í boði styrkir fyrir fyrrverandi DAAD-styrkþega.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á eftirfarandi vefslóðum:



  • Frekari upplýsingar veitir einnig Jessica Guse, lektor í þýsku við Háskóla Íslands ([email protected]).
  • Frestur til að skila inn umsóknum framlengist hér með til 10. nóvember 2011.
  • Umsóknum skal skilað til mennta- og menningarmálaráðuneytisins.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum