Hoppa yfir valmynd
21. nóvember 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms í Finnlandi

Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í  Finnlandi  bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2012-2013.

Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í  Finnlandi  bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2012-2013. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver styrkur kemur í hlut Íslendinga. Styrkirnir eru ætlaðir til doktorsnáms, rannsókna og kennslu á háskólastigi. Umsóknir um styrki til doktorsnáms njóta forgangs.  Styrkir eru veittir til 3 - 9 mánaða og nemur styrkfjárhæðin 1200 evrum á mánuði. Upplýsingar og eyðublöð er hægt að nálgast á vefsíðu CIMO (Centret for International Mobility).
Mennta- og menningarmálaráðuneytið framsendir umsóknir er uppfylla skilyrði sem nánar eru tilgreind í upplýsingum um styrkina og skulu umsóknir, ásamt fylgiskjölum, sendar ráðuneytinu.

Nánari upplýsingar veitir Sunna Viðarsdóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti ([email protected]).

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2012.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum