Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing frá Menningarsjóði Íslands og Finnlands

Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands.  Í því skyni veitir sjóðurinn árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum en stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina.

  • Styrkir til að sækja norrænar eða alþjóðlegar ráðstefnur koma að jafnaði ekki til greina.
  • Athygli er vakin á að nú er einungis hægt að sækja um rafrænt á www.hanaholmen.fi.
  • Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum fyrir tímabilið 1. júní 2012  -  31. maí 2013 rennur út þann 29. febrúar 2012. Ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum verður tekin fyrir lok maí nk.
  • Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku eða norsku.  Fyrirspurnir má senda á:  [email protected].
  • Stjórn Menningarsjóðs Íslands og Finnlands, 31. janúar 2012

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum