Hoppa yfir valmynd
6. desember 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tilnefning í Æskulýðsráð

Mennta- og menningarmálaráðuneyti leitar hér með eftir tilnefningum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka um fulltrúa í Æskulýðsráð 2013 til 2014 sbr. reglugerð nr. 1088/2007 um skipan fulltrúa í Æskulýðsráð

  
Mennta- og menningarmálaráðuneyti leitar hér með eftir tilnefningum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka um fulltrúa í Æskulýðsráð 2013 til 2014 sbr. reglugerð nr. 1088/2007 um skipan fulltrúa í Æskulýðsráð. Tilnefna skal konu og karl til setu í Æskulýðsráði til tveggja ára. Í tilnefningunni skal koma fram vilji tilnefndra einstaklinga til að taka að sér setu í Æskulýðsráði. Með tilnefningu skal fylgja yfirlit yfir reynslu og þekkingu tilnefndra á starfi æskulýðsfélaga eða æskulýðssamtaka og yfirlýsing um að viðkomandi uppfylli ákvæði 10. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007.

  • Tilnefningar þurfa að berast  mennta- og menningarmálaráðuneyti Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, bréflega í síðasta lagi fimmtudaginn 20. desember 2012.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum