Styrkir úr Sprotasjóði
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla vegna skólaársins 2013-14. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Í 4. gr. reglugerðar nr. 242/2009 um Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla segir:
Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.
Áherslusvið sjóðsins verða að þessu sinni:
a) Mat á námi með hliðsjón af nýjum aðalnámskrám
b) Jafnrétti í skólastarfi
c) Kynjafræði, kynheilbrigði og klám; – í samhengi við grunnþætti menntunar
Við mat á umsóknum verður skoðað hvernig verkefnin falla að hlutverki Sprotasjóðs ásamt því að markmið verkefnis séu skýrt fram sett, að verkefnisstjórn sé vel skilgreind, að raunsæjar kostnaðar-, verk- og tímaáætlanir séu lagðar fram, og að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint.
- Umsóknir sem falla utan ofannefndra áherslusviða fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun.
- Fyrir skólaárið 2013 – 2014 verða til úthlutunar allt að 45 milljónir kr.
- Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf um aðgang að umsóknavef Sprotasjóðs.Tekið verður á móti umsóknum frá 11. janúar til 28. febrúar 2013.
- Nánari upplýsingar um Sprotasjóð veitir Gunnhildur Helgadóttir hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri í síma 460-8900 eða í tölvupósti á [email protected]