Styrkir til námsdvalar í Litháen skólaárið 2013-2014
Stjórnvöld í Litháen bjóða fram styrki handa Íslendingum til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2013-2014.
Stjórnvöld í Litháen bjóða fram styrki handa Íslendingum til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2013-2014. Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum, fræðimönnum eða kennurum til náms í litháísku eða baltneskum fræðum og eru til 5-10 mánaða.
Einnig er í boði styrkur til að sækja sumarnámskeið í tungu og menningu Litháa sumarið 2013.
- Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2013.
- Upplýsingar um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á eftirfarandi vefslóð: http://www.smpf.lt/en/statescholarships