Hoppa yfir valmynd
8. mars 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr Æskulýðssjóði

Mennta og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.

Mennta og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.

Mennta og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:

  1. Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
  2. Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
  3. Nýjungar og  þróunarverkefni.
  4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Við úthlutun úr Æskulýðssjóði fyrir árið 2013 verður lögð árhersla á umsóknir frá æskulýðsfélögum og æskulýðssamtökum sem lúta að eflingu innra starfs og fjölgun félagsmanna, mannréttindafræðslu, verkefnum sem ætlað er að vinna gegn einelti eða einsemd og samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Hvorki er heimilt að styrkja árvissa né fasta viðburði í félagsstarfi svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa.
    
Mennta- og menningarmálaráðherra úthlutar styrkjum úr Æskulýðssjóði að fengnum tillögum stjórnar Æskulýðssjóðs.
    
Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og  1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni.
    
Í umsókn til Æskulýðssjóðs skulu koma fram upplýsingar um:

  • nafn æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka
  • nafn og heimilisfang umsækjanda
  • heiti, lýsing og markmið verkefnis, ásamt kostnaðar- og tímaáætlun
  • áætlaðan fjölda þátttakenda
  • samstarfsaðila eftir því sem við á
  • kennitölu og númer bankareiknings þess er styrkurinn á að leggjast inn á ef viðkomandi hefur fengið úthlutað styrk.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi

Eyðublöð má finna á minarsidur.stjr.is.
  • Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins. Aðgengi er einungis gefið á kennitölur og er lykilorð sent til viðkomandi á netfang sem gefið er upp við nýskráningu.
  • Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.
  • Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja mennta- og menningarmálaráðuneytið undir flipanum Umsóknir. Þar er umsóknareyðublað fyrir íþróttasjóð. Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Umsækjendur geta fylgst með afgreiðslu umsókna sinna með því að skrá sig inn á umsóknavefinn.

Frekari upplýsingar um Æskulýðssjóð veitir Valgerður Þórunn Bjarnadóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2013.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum