Hoppa yfir valmynd
20. mars 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Barnamenningarsjóður

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Barnamenningarsjóði. Umsóknarfrestur er til 11. apríl 2013.

Sjóðurinn starfar samkvæmt reglum um barnamenningarsjóð  nr. 594/2003. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði barnamenningar. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna.
Sjóðurinn hefur úthlutað styrkjum árlega frá árinu 1995 og hefur mennta- og menningarmálaráðuneyti annast umsýslu hans. Frá og með árinu 2013 fer Rannís með umsýslu sjóðsins.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum