Námsvist við alþjóðlegan menntaskóla
Mennta- og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um skólavist við Alþjóðlegan menntaskóla Rauða krossins (Red Cross Nordic United World College) í Flekke, Noregi.
Mennta- og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um skólavist við Alþjóðlegan menntaskóla Rauða krossins (Red Cross Nordic United World College) í Flekke, Noregi. Skólinn er rekinn sameiginlega af Norðurlöndunum í tengslum við Rauða krossinn. Nám við skólann tekur tvö ár og lýkur því með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi, International Baccalaureat Diploma (IB). Kennsla fer fram á ensku.
Íslensk stjórnvöld eiga aðild að rekstri skólans og býðst skólavist fyrir einn nemanda. Umsækjandi þarf að hafa lokið einu ári í framhaldsskóla. Nánari upplýsingar má finna á vef skólans.
Auglýst er eftir umsækjendum um skólavist fyrir skólaárið 2013-2014. Umsækjendur skulu hafa lokið sem svarar einu ári í framhaldsskóla, hafa gott vald á ensku og vera á aldrinum 16-19 ára. Væntanlegur nemandi þarf sjálfur að greiða fargjald og námsgögn.
- Umsóknir berist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 13. maí næstkomandi.
- Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð.
- Nánari upplýsingar veita Erna Árnadóttir eða Þórir Ólafsson í síma 545 9500. Netföng: [email protected] og [email protected].