Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn
Árið 2014 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum verkefnum. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar. Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem er að finna á vefslóðinni www.norden.se.
- Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2014 og skal skila umsóknum samkvæmt upplýsingum á heimasíðu sjóðsins.
- Styrkjum verður úthlutað í apríl nk.
Stjórn sænsk- íslenska samstarfssjóðsins, 17. desember 2013.