Embætti skólameistara við Flensborgarskólann í Hafnarfirði laust til umsóknar
Skólameistari veitir framhaldsskólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma.
Starfssvið
Skólameistari veitir framhaldsskólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
Samkvæmt 14. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008, skal skólameistari hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á framhaldsskólastigi.
Skólameistari gegnir mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og mikilvægt að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar. Leitað er eftir einstaklingi með stjórnunarreynslu, leiðtoga- og samskiptahæfni, reynslu af stefnumótunarvinnu og hæfileika til nýsköpunar. Þekking og reynsla af fjármálum og rekstri er einnig mikilvæg.
Ráðning og kjör
Mennta- og menningarmálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2014.
Um laun skólameistara fer eftir ákvörðun kjararáðs, sbr. lög um kjararáð, nr. 47/2006, með síðari breytingum.
Umsóknir
- Umsóknir með upplýsingum um starfsheiti ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík eða á netfangið [email protected], fyrir kl. 16:00, 8. apríl 2014.
- Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Pétur Hjaltested rekstrarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2014.