Hoppa yfir valmynd
5. maí 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Rafræn innritun í framhaldsskóla 2006

Umsóknarfrestur um nám í dagskóla á haustönn 2006 er til mánudagsins 12. júní. Innritunin fer fram á netinu og hefst 15. maí.

Umsóknarfrestur um nám í dagskóla á haustönn 2006 er til mánudagsins 12. júní. Innritunin fer fram á netinu og hefst 15. maí. Rafrænt umsóknareyðublað og nauðsynlegar upplýsingar um innritunina er að finna á menntagatt.is. Þar eru einnig upplýsingar um nám í framhaldsskólum og námsframboð.

Nemendur sem ljúka 10. bekk 2006

Nemendur í 10. bekk grunnskóla fá bréf með leiðbeiningum og veflykli sem opnar þeim aðgang að innrituninni. Forráðamenn þeirra fá einnig bréf frá ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina.

Aðrir umsækjendur um nám í dagskóla

Umsækjendur sem ekki hafa veflykil geta sótt hann á menntagatt.is. Þegar umsækjendur hafa fengið veflykil opnast þeim aðgangur að innrituninni.

Umsóknir um nám í kvöldskóla og fjarnám

Innritun í kvöldskóla, fjarnám og annað en nám í dagskóla fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa það í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð. Umsækjendum er bent á að snúa sér til viðkomandi skóla. Upplýsingar um framhaldsskólana má finna á menntagatt.is.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum