Hoppa yfir valmynd
3. september 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til atvinnuleikhópa 2011

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2011 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.

leikhús

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2011 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.
Umsóknir geta miðast við einstök verkefni eða samfellt starf til lengri tíma, sbr. 16. gr. leiklistarlaga nr. 138/1998, og verður afstaða tekin til skiptingar fjárins eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum 2011 í þessu skyni kann að segja til um.
Umsóknir skulu berast til mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 föstudaginn 1. október 2010, á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin og úthlutunarreglur er einnig að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.

  • Umsóknarfrestur er til 1. október 2010 kl. 16:00.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum