Hoppa yfir valmynd
3. mars 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun listamannalauna 2004

Úthlutunarnefndir listamannalauna, sem starfa samkvæmt lögum nr. 35/1991 með áorðnum breytingum, hafa lokið störfum. Alls bárust 603 umsóknir um starfslaun listamanna 2004, en árið 2003 bárust 636 umsóknir.

Úthlutunarnefndir listamannalauna, sem starfa samkvæmt lögum nr. 35/1991 með áorðnum breytingum, hafa lokið störfum. Alls bárust 603 umsóknir um starfslaun listamanna 2004, en árið 2003 bárust 636 umsóknir.

Skipting umsókna milli sjóða 2004 var eftirfarandi:

  • Launasjóður rithöfunda 155 umsóknir.
  • Launasjóður myndlistarmanna 203 umsóknir.
  • Tónskáldasjóður 25 umsóknir.
  • Listasjóður 220 umsóknir, þar af 92 umsóknir frá leikhópum.


Úthlutunarnefndir voru að þessu sinni skipaðar sem hér segir:

Úthlutunarnefnd Launasjóðs rithöfunda:

Ármann Jakobsson, formaður, Ástráður Eysteinsson og Kristín Ástgeirsdóttir.

Úthlutunarnefnd Launasjóðs myndlistarmanna:

Jón B. K. Ransu, Elsa D. Gísladóttir og Margrét Elísabet Ólafsdóttir. Sigtryggur Bjarni Baldvinsson, varamaður Jóns, tók einnig þátt í störfum nefndarinnar að þessu sinni.

Úthlutunarnefnd Tónskáldasjóðs:

Árni Harðarson, formaður, Karólína Eiríksdóttir og Guðmundur Óli Gunnarsson.

Stjórn listamannalauna:

Í desember 2003 skipaði menntamálaráðherra í Stjórn listamannalauna. Skipunin gildir frá 1. janúar 2004 til 14. nóvember 2006. Stjórnina skipa: Guðrún Nordal, formaður, tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna, Baldur Símonarson, varaformaður, skipaður án tilnefningar og Mist Þorkelsdóttir, tilnefnd af Listaháskóla Íslands. Varamenn eru: Guðbjörg Arnardóttir, tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna, Katrín Fjeldsted, skipuð án tilnefningar og Ragnheiður Skúladóttir, tilnefnd af Listaháskóla Íslands. Ragnheiður Skúladóttir, varamaður Mistar Þorkelsdóttur, tók einnig þátt í störfum Stjórnar listamannalauna að þessu sinni. Stjórn listamannalauna hefur yfirumsjón með sjóðunum og úthlutar fé úr Listasjóði. Listasjóður er almennur sjóður en sinnir einkum öðrum listgreinum en þeim sem falla undir sérgreindu sjóðina þrjá sem fyrst eru taldir. Allir sjóðirnir veita starfslaun, svo og náms- og ferðastyrki.

Eftirtöldum listamönnum voru veitt starfslaun sem hér segir:

Úr Launasjóði rithöfunda:

3 ár (4)

Guðmundur Páll Ólafsson

Ingibjörg Haraldsdóttir

Kristín Ómarsdóttir

Sigurjón B. Sigurðsson (Sjón)

1 ár (10)

Andri Snær Magnason

Árni Ibsen

Einar Már Guðmundsson

Guðrún Eva Mínervudóttir

Jón Kalman Stefánsson

Kristín Steinsdóttir

Ólafur Gunnarsson

Sigfús Bjartmarsson

Sigurður Pálsson

Þórunn Valdimarsdóttir

6 mánuðir (40)

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson

Atli Magnússon

Auður Jónsdóttir

Ágústína Jónsdóttir

Bjarni Bjarnason

Bjarni Jónsson

Einar Kárason

Elísabet K. Jökulsdóttir

Erlingur E. Halldórsson

Eysteinn Björnsson

Eyvindur P. Eiríksson

Geirlaugur Magnússon

Guðjón Friðriksson

Guðmundur Andri Thorsson

Guðmundur Ólafsson

Guðrún Hannesdóttir

Hallgrímur Helgason

Hjörtur Pálsson

Hlín Agnarsdóttir

Ísak Harðarson

Kristín Helga Gunnarsdóttir

Kristín Marja Baldursdóttir

Linda Vilhjálmsdóttir

Margrét Lóa Jónsdóttir

Ólafur Haukur Símonarson

Óskar Árni Óskarsson

Pétur Gunnarsson

Ragnheiður Gestsdóttir

Rúnar Helgi Vignisson

Sigrún Eldjárn

Sigtryggur Magnason

Sigurbjörg Þrastardóttir

Sigurður Gylfi Magnússon

Sindri Freysson

Stefán Máni Sigþórsson

Steinar Bragi Guðmundsson

Viðar Hreinsson

Viktor Arnar Ingólfsson

Vilborg Davíðsdóttir

Þorvaldur Þorsteinsson

Úr Launasjóði myndlistarmanna:

2 ár (4)

Gabríela Friðriksdóttir

Hildur Bjarnadóttir

Hreinn Friðfinnsson

Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson

6 mánuðir (25)

Anna Líndal

Bjargey Ólafsdóttir

Brynhildur Þorgeirsdóttir

Egill Sæbjörnsson

Eirún Sigurðardóttir

Erling T. V. Klingenberg

Guðjón Ketilsson

Guðný Rósa Ingimarsdóttir

Guðrún Vera Hjartardóttir

Halldór Ásgeirsson

Hekla Dögg Jónsdóttir

Hlynur Hallsson

Húbert Nói Jóhannesson

Ívar Valgarðsson

Jóní Jónsdóttir

Kristinn G. Harðarson

Kristján Guðmundsson

Magnús Sigurðarson

Ólafur Sveinn Gíslason

Ólöf Ragnheiður Björnsdóttir

Ósk Vilhjálmsdóttir

Pétur Örn Friðriksson

Ráðhildur S. Ingadóttir

Sigrún Inga Hrólfsdóttir

Svava Björnsdóttir
1 ár (5)

Ásmundur Ásmundsson

Helgi Hjaltalín Eyjólfsson

Olga Soffía Bergmann

Sara Björnsdóttir

Rúrí (Þuríður Fannberg)

3 mánuðir (4)

Björk Guðnadóttir

Hrafnhildur Sigurðardóttir

Sigurþór Hallbjörnsson

Unnar Örn Jónasson Auðarson

Ferðastyrkur (2)

Guðjón Bjarnason

Leifur Breiðfjörð

Úr Tónskáldasjóði:

2 ár (1)

Áskell Másson

1 ár (4)

Ríkharður H. Friðriksson

Sveinn Lúðvík Björnsson

Þorsteinn Hauksson

Þórður Magnússon
6 mánuðir (4)

Atli Ingólfsson

Hildigunnur Rúnarsdóttir

Jóhann Jóhannsson

Úlfar Ingi Haraldsson

4 mánuðir (1)

Þuríður Jónsdóttir

Úr Listasjóði:

2 ár (1)

Sigurður Flosason

1 ár (5)

Ásgerður Júníusdóttir

Berglind María Tómasdóttir

Brynja Benediktsdóttir

Guðni Franzson

Rut Ingólfsdóttir

6 mánuðir (15)

A. Nanna Ólafsdóttir

Ásdís Valdimarsdóttir

Bjarni Hinriksson

Björn Thoroddsen

Daníel Þorsteinsson

Ellen Kristjánsdóttir

Halldór E. Laxness

Hildigunnur Halldórsdóttir

Ólöf Ingólfsdóttir

Pétur Jónasson

Rúnar Óskarsson

Sigríður Sigurjónsdóttir

Sveinbjörg Þórhallsdóttir

Örn Ingi

Örn Magnússon
3 mánuðir (6)

Arnar Guðjónsson

Kristín Sigfríður Garðarsdóttir

Lovísa Ósk Gunnarsdóttir

Sigríður Eyþórsdóttir

Viðar Eggertsson

Þorleifur Örn Arnarsson

Ferðastyrkur (2)

Edda Erlendsdóttir

Martial Guðjón Nardeau

Samkvæmt ákvæðum núgildandi laga um listamannalaun var úthlutað starfslaunum til leikhópa, enda verði þeim eingöngu varið til greiðslu starfslauna til einstakra leikhúslistamanna. Stjórn listamannalauna fól leiklistarráði að fjalla um veitingu þessara starfslauna, eins og heimilt er skv. núgildandi lögum um listamannalaun. Leiklistarráð skipa Björn G. Björnsson, formaður, Hjálmar Hjálmarsson og Þórdís Arnljótsdóttir.

Eftirtaldir leikhópar fengu starfslaun (10 hópar, 100 mánuðir)

Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör 12 mánuðir

Nútímadanshátið í Reykjavík 12 mánuðir

Himnaríki 11 mánuðir

Sokkabandið 10 mánuðir

Vesturport 10 mánuðir

Loftkastalinn ehf. 8 mánuðir

Leikfélagið Annað Svið 7 mánuðir

Hið lifandi leikhús 6 mánuðir

Leikhúskór LA, Akureyri 6 mánuðir

Möguleikhúsið 6 mánuðir

Thalamus 6 mánuðir

Stoppleikhópurinn 4 mánuðir

Warera 2 mánuðir

Listasjóður veitti einnig sérstök framlög til eftirtalinna listamanna sem fengu listamannalaun áður fyrr og voru 60 ára eða eldri við gildistöku laganna um listamannalaun, sbr. 9. gr. laga nr. 35/1991 og ekki fengu starfslaun.

Styrkurinn jafngildir starfslaunum í einn mánuð.

Agnar Þórðarson

Benedikt Gunnarsson

Bragi Ásgeirsson

Einar G. Baldvinsson

Einar Bragi Sigurðsson

Eiríkur Smith

Elías B. Halldórsson

Gísli J. Ástþórsson

Gísli Sigurðsson

Guðmundur L. Friðfinnsson

Guðmundur Jónsson

Gunnar Dal

Hjörleifur Sigurðsson

Hörður Ágústsson

Jón Ásgeirsson

Kjartan Guðjónsson

Magnús Blöndal Jóhannsson

Ólöf Pálsdóttir

Sigurður Hallmarsson

Sigurður A. Magnússon

Skúli Halldórsson

Veturliði Gunnarsson

Stjórn listamannalauna 3. mars 2004

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum