Hoppa yfir valmynd
2. mars 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til atvinnuleikhópa 2004

Menntamálaráðuneytið hefur að tillögu leiklistarráðs úthlutað styrkjum til atvinnuleikhópa árið 2004

Menntamálaráðuneytið hefur að tillögu leiklistarráðs úthlutað styrkjum til atvinnuleikhópa árið 2004 sem hér segir:

Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör - 11.230 þús. kr. vegna starfssamnings

Leikhópurinn Á senunni - 4.000 þús. kr. til leikstarfsemi

Möguleikhúsið - 4.000 þús. kr. til leikstarfsemi

Vesturport - 4.000 þús. kr. til leikstarfsemi

Himnaríki ehf. - 3.300 þús. kr. til uppsetningar á „Er einhver heima"

Loftkastalinn - 3.000 þús. kr. til uppsetningar á „Grímsævintýri"

Annað svið - 3.000 þús. kr. vegna uppsetningar á „Úlfhamssögu"

Sokkabandið - 2.900 þús. kr. vegna „Elskulegur faðir okkar"

Pars Pro Toto - 2.300 þús. kr. vegna uppsetningar á „Von"

Sögusvuntan ehf. - 1.270 þús. kr. vegna uppsetningar á „Egla í nýjum spegli"

Stoppleikhópurinn- 1.000 þús. kr. vegna uppsetningar á „Sámur og Keli".

Alls bárust umsóknir frá 79 aðilum til 105 verkefna. Þar af 7 umsóknir um starfsstyrki eða til leikstarfsemi. Til úthlutunar voru samtals kr. 40 milljónir. Í leiklistarráði sitja Björn G. Björnsson, formaður, Hjálmar Hjálmarsson og Þórdís Arnljótsdóttir.

Stjórn starfslauna listamanna hefur að tillögu leiklistarráðs ákveðið að veita eftirtöldum leikhópum starfslaun úr Listasjóði sem hér segir:

1. Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör 12 mánuðir
2. Nútímadanshátíð í Reykjavík 12 mánuðir
3. Himnaríki ehf 11 mánuðir
4. Vesturport 10 mánuðir
5. Sokkabandið 10 mánuðir
6. Loftkastalinn 8 mánuðir
7. Annað svið 7 mánuðir
8. Leikhúskórinn, leikfélag Akureyrar 6 mánuðir
9. Hið lifandi leikhús 6 mánuðir
10. Möguleikhúsið 6 mánuðir
11. Thalamus, leikfélag 6 mánuðir
12. Stoppleikhópurinn 4 mánuðir
13. Warera 2 mánuðir.


Menntamálaráðuneytið, 2. mars 2004

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum