Hoppa yfir valmynd
6. maí 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla 2005

Þróunarsjóður grunnskóla starfar samkvæmt reglum sem menntamálaráðherra setur á grundvelli 52. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.

Þróunarsjóður grunnskóla starfar samkvæmt reglum sem menntamálaráðherra setur á grundvelli 52. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla. Tilgangur sjóðsins er að efla nýjungar, tilraunir og nýbreytni í skipulagi náms, kennsluháttum, námsgögnum og mati í grunnskólum.

Í janúar 2005 var auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna á þremur forgangssviðum:

A. Fjölbreytt námsmat

B. Lýðræði í skólastarfi

C. Sjálfsmat skóla

Auk þess var auglýst eftir almennum þróunarverkefnum.

Fimm manna ráðgjafarnefnd metur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar. Í nefndinni eru fulltrúar frá Kennaraháskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, samtökum kennara og skólastjóra og menntamálaráðuneyti.

Menntamálaráðherra hefur ákveðið, að tillögu ráðgjafarnefndar, að veita styrki að upphæð alls 12,5 milljónir króna til 31 verkefnis, en samtals voru umsóknir að þessu sinni 58.

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að ný forgangssvið Þróunarsjóðs grunnskóla árið 2006 verði AÐ LÆRA AÐ LÆRA, vinnubrögð og verklag í námi og jafnréttisfræðsla í skólastarfi. Auglýst verður eftir umsóknum í byrjun janúar 2006.

Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands annast umsýslu Þróunarsjóðs grunnskóla skv. samningi við menntamálaráðuneytið. Vísað er á vef stofnunarinnar um frekari upplýsingar. rannsokn.khi.is

Eftirtalin verkefni hafa fengið styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla fyrir skólaárið 2005 - 2006.

(xls - 20KB)



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum