Hoppa yfir valmynd
16. júní 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun úr Barnamenningarsjóði

Úthlutun 2005.

Barnamenningarsjóður, sem starfar samkvæmt reglum nr. 594/2003, hefur lokið úthlutun styrkja 2005. Auglýst var eftir umsóknum 4. febrúar og rann umsóknarfrestur út 10. mars. Alls sóttu 53 aðilar um styrki til 57 verkefna. Úthlutað var styrkjum samtals að fjárhæð kr. 1.500 þús. til eftirtalinna verkefna:

Draumasmiðjan
til uppsetningar á leikverkinu Draugasaga 200.000,- kr.
Myndlistarkólinn í Reykjavík
vegna samvinnuverkefnis Myndlistaskólans
í Reykjavík og Listasafns Reykjavíkur
Dieter Roth listasmiðjur í Hafnarhúsinu 200.000,- kr.
Hreyfingarmiðstöðin ehf.
til að gera stuttmyndina "Allamamma og Brútus"
sem er byggð á smásögu eftir Einar Kárason
sem heitir "Sorgarsaga" 200.000,- kr.
Kramhúsið ehf.
vegna sumarnámskeiða með alþjóðlegum
ævintýrablæ fyrir börn og unglinga og sérsniðinna
námskeiða fyrir tvo aldurshópa í grunnskólum 200.000,- kr.
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ
til uppsetningar á söngleiknum Bugsý Malone
eftir Alan Parker og Paul Williams 150.000,- kr.
Pétur Hafþór Jónsson
til hljóðfærakaupa vegna breyttra kennsluhátta 150.000,- kr.
Smekkleysa SM ehf.
til útgáfu á barnagælum í segulbandasafni
Stofnunar Árna Magnússonar 200.000,- kr.
Sumartónleikar í Skálholtskirkju
vegna tónlistarsmiðju sem haldin verður
5 laugardaga í júlí og ágúst í tengslum við
Sumartónleika í Skálholtskirkju 100.000,- kr.
Leikfélag Reyðarfjarðar og Grunnskóli Reyðarfjarðar
til uppsetningar á söngleik eftir
Ármann Guðmundsson leikstjóra 100.000,- kr.




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum