Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun úr Þróunarsjóði leikskóla árið 2006

Þróunarsjóður leikskóla starfar samkvæmt reglum nr. 163/2001 sem settar eru á grundvelli 5. gr. laga nr. 78/1994 um leikskóla.

Þróunarsjóður leikskóla starfar samkvæmt reglum nr. 163/2001 sem settar eru á grundvelli 5. gr. laga nr. 78/1994 um leikskóla. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum með hliðsjón af aðalnámskrá leikskóla. Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í leikskólastarfi.

Í janúar sl. var auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna á tveimur forgangssviðum:

A. Lýðræði í leikskólastarfi með sérstaka áherslu á jafnrétti.

B. Náttúruvísindi í leikskólum með sérstaka áherslu á tengsl við skapandi starf.

Auk þess var auglýst eftir almennum þróunarverkefnum.

Þriggja manna úthlutunarnefnd metur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar. Í nefndinni eru fulltrúar frá Kennaraháskóla Íslands, Félagi leikskólakennara og menntamálaráðuneyti.Umsýsla með Þróunarsjóði leikskóla er í höndum ráðuneytisins og Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands.

Menntamálaráðherra hefur ákveðið, að tillögu úthlutunarnefndar, að veita styrki að upphæð alls 3,7 millj. kr. til samtals 13 verkefna.

Eftirtalin verkefni hljóta styrk úr Þróunarsjóði leikskóla skólaárið 2006-2007:

Verkefni Styrkþegi Upphæð
Aukin gæði náms - þróunarstarf í leikskólanum Tröllaborgum Leikskólinn Tröllaborgir 150.000
Leikfélagar Bæjarskrifstofur Garðabæjar 150.000
Fuglaveröld Ólafur B. Ólafsson 150.000
Nám í gegnum íþróttir Leikskólinn Lyngholt 200.000
Listalíf Listasafn Íslands 200.000
Talnaskilningur barna í leikskóla Leikskólinn Teigasel 250.000
Stærðfræðin í leik og starfi leikskólans Félags- og skólaþjónustan Útey 250.000
Mannauður í margbreytileika Leikskólinn Fellaborg 250.000
Líf og leikni Leikskólinn Reynisholt 300.000
Ég og leikskólinn minn - Ferlimöppur til að skapa markvisst upplýsingaflæði milli skóla og heimilis Leikskólinn Sólvellir 350.000
Náttúruvísindi í leikskólum Leikskólinn Mánabrekka 400.000
Tónlist tengir kynslóðir Vinagarður: Leikskóli KFUM & KFUK 500.000
Virðing og jákvæð samskipti Leikskólinn Gefnarborg 550.000
Alls: 3.700.000




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum