Hoppa yfir valmynd
5. maí 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun í framhaldsskóla 2006

Innritun í framhaldsskóla fer fram dagana 15. maí til 12. júní 2006. Þann 15. maí verður opnað fyrir rafræna innritun á skólavef menntamálaráðuneytisins, menntagatt.is. Allar umsóknir um nám í dagskóla verða rafrænar að þessu sinni.

Innritun í framhaldsskóla fer fram dagana 15. maí til 12. júní 2006. Þann 15. maí verður opnað fyrir rafræna innritun á skólavef menntamálaráðuneytisins, menntagatt.is. Allar umsóknir um nám í dagskóla verða rafrænar að þessu sinni. Sótt er um á netinu og berast umsóknirnar beint til upplýsingakerfa framhaldsskólanna.  

Nemendur í 10. bekk grunnskóla fá bréf með leiðbeiningum frá menntamálaráðuneytinu ásamt veflykli sem veitir þeim persónulegan aðgang að innritun í framhaldsskóla. Forráðamenn nemenda 10. bekkjar fá einnig bréf frá ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Til að sækja um er hægt að nýta allar tölvur með netaðgangi, til dæmis í grunn- og framhaldsskólum. Umsækjendur sem luku grunnskólanámi fyrir árið 2005 þurfa að sækja sér veflykil á menntagatt.is.

Við útfyllingu umsóknar er framhaldsskóli valinn ásamt skólum til vara, sem og námsbraut og önnur þjónusta sem er í boði í einstökum skólum. Hægt er að breyta eða afturkalla umsóknir allt þar til lokað verður fyrir skráningu á miðnætti þann 12. júní 2006. Eftir það geta umsækjendur skoðað umsóknir sínar og fylgst með afgreiðslu þeirra. Geti skóli ekki orðið við umsókn verður hún send í skóla sem nemandi valdi til vara. Þegar allar umsóknir hafa verið afgreiddar fá nemendur bréf með upplýsingum um afgreiðsluna. Nemendur þurfa að staðfesta veitta skólavist með greiðslu innritunargjalds.

Síðastliðið ár sóttu nemendur sem luku 10. bekk grunnskóla um skólavist í framhaldsskóla á netinu í fyrsta sinn. Framkvæmdin tókst vel og því var ákveðið að allar umsóknir í dagskóla verði rafrænar að þessu sinni. Rafræn innritun auðveldar yfirsýn yfir eftirspurn nemenda eftir skólum og námsbrautum. Fyrr verður ljóst hverjar óskir nemenda eru og því auðveldara að bregðast við þeim. Þjónusta við nemendur verður betri og nýir möguleikar opnast til að tengja innritunina námsráðgjöf og öðrum þáttum skólastarfsins í grunnskólunum í samvinnu við framhaldsskólana.

Innritun í nám í kvöldskóla, fjarnám og annað nám en í dagskóla verður með hefðbundnum hætti. Innritun fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa slíkt nám í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð. Umsækjendum er bent á að hafa samband við viðkomandi skóla hyggist þeir stunda nám í kvöldskóla eða fjarnámi. Upplýsingar um framhaldsskóla má finna á menntagatt.is.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum