Hoppa yfir valmynd
11. júlí 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nýr framhaldsskóli – kynningarfundur menntamálaráðherra í dag 11. júlí í Þjóðminjasafni

Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, boðar til fréttamannafundar
um nýja sýn á tilhögun náms í framhaldsskólum í kjölfar skýrslu starfsnámsnefndar.

Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, boðar til fréttamannafundar
um nýja sýn á tilhögun náms í framhaldsskólum í kjölfar skýrslu starfsnámsnefndar.
Fundurinn verður haldinn í Þjóðminjasafninu, fyrirlestrasal á 1. hæð,
þriðjudaginn 11. júlí frá kl. 14:00 – 14:45.

Á fundinum verður m.a. fjallað um:

  • Bóknám - starfsnám. Skörp skil eða þverfagleg tenging?
  • Nýjar námsleiðir í framhaldsskóla eða óbreytt staða?
  • Frelsi og ábyrgð framhaldsskóla eða miðstýring?
  • Valfrelsi nemenda?
  • Inntak náms til stúdentsprófs?
  • Tengsl grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla.
  • Tengsl við atvinnulíf.


Að loknu yfirliti menntamálaráðherra mun Jón B. Stefánsson,
skólameistari, gera stutta grein fyrir tillögum nefndarinnar.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum