Hoppa yfir valmynd
16. október 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úrskurður vegna kæru Kjartans Ólafssonar um ákvörðun þjóðskjalavarðar

Menntamálaráðherra hefur kveðið upp úrskurð vegna stjórnsýsluákæru Kjartans Ólafssonar. Hefur ráðherra ákveðið að fella úr gildi ákvörðun þjóðskjalavarðar um að synja beiðni Kjartans um aðgang að gögnum um símahleranir.

Menntamálaráðherra hefur kveðið upp úrskurð vegna stjórnsýsluákæru Kjartans Ólafssonar. Hefur ráðherra ákveðið að fella úr gildi ákvörðun þjóðskjalavarðar um að synja beiðni Kjartans um aðgang að gögnum um símahleranir.

Þjóðskjalavörður byggði ákvörðun sína á því að í 2. ml. 1. mgr. 9. gr. laga um Þjóðskjalasafn Íslands segi að um aðgang að gögnum og skjölum sem upplýsingalög taki ekki til, skuli mælt fyrir um í reglugerð sem menntamálaráðherra setji, að fengnum tillögum þjóðskjalavarðar. Sú reglugerð hafi ekki verið sett og því geti þjóðskjalavörður ekki veitt frjálsan aðgang að umbeðnum gögnum.

Í úrskurði ráðherra segir m.a. að ekki sé hægt að fallast á það með þjóðskjalaverði að unnt sé að synja umræddri beiðni Kjartans Ólafssonar og þar með að byggja hina kærðu ákvörðun á því að umrædd reglugerð hafi ekki verið sett. Er þá höfð til hliðsjónar sú frumskylda stjórnvalda samkvæmt íslenskum stjórnlögum, að starfa á grundvelli þeirra réttarheimilda, sem í gildi eru á hverjum tíma og sjá um framkvæmd þeirra, enda eru allir jafnir fyrir lögum, sbr. 65. gr. Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Fyrir liggur að reglugerð skv. 2. ml. 1. mgr. 9. gr. laga um Þjóðskjalasafn Íslands hefur ekki verið sett og skiljanlegt er að þjóðskjalaverði hafi verið vandi á höndum vegna þess við afgreiðslu hinnar kærðu ákvörðunar. Á hinn bóginn verður að telja að við töku hinnar kærðu ákvörðunar hafi þjóðskjalaverði borið að leggja mat á umbeðin gögn á grundvelli gildandi laga og viðurkenndra lagasjónarmiða. Koma þar einkum til skoðunar ákvæði laga um Þjóðskjalasafn Íslands, eftir því sem við á, jafnræðisregla 65. gr. stjórnarskrár og jafnræðisregla 1. mgr. 11. gr. stjórnsýslulaga með hliðsjón af þegar veittum aðgangi að umræddum gögnum til handa Guðna Th. Jóhannessyni, meginregla 9. gr. upplýsingalaga með hliðsjón af gögnum sem varða kæranda persónulega, auk ákvæða stjórnarskrár, einkum 71. gr. um friðhelgi einkalífs gagnvart einkalífsupplýsingum um aðra en kæranda í viðkomandi gögnum svo og ákvæði laga um þagnarskyldu.

Í ljósi þess að ekki hafi verið tekin efnisleg afstaða til beiðni kæranda, dags. 25. júlí og 21. ágúst sl., á réttum lagagrundvelli, er í úrskurði ráðherra ekki talið hjá því komist að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun og leggja fyrir þjóðskjalavörð að taka beiðni Kjartans Ólafssonar frá 25. júlí og 21. ágúst sl. til meðferðar og úrlausnar að nýju.

Úrskurð menntamálaráðherra í heild sinni má nálgast á vef menntamálaráðuneytisins, www.menntamalaraduneyti.is



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum