Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ungt fólk 2006

Menntamálaráðuneyti boðar til kynningarfundar, fimmtudaginn 25. janúar n.k.

Menntamálaráðuneyti boðar til kynningarfundar, fimmtudaginn 25. janúar n.k. þar sem starfsfólk Rannsóknar og greiningar þau Dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir og Álfgeir Logi Kristjánsson félagsfræðingur munu kynna helstu niðurstöður rannsóknarinnar „Ungt fólk 2006“ er viðkemur menntun, menningu, tómstundum, íþróttaiðkun og framtíðarsýn íslenskra ungmenna. Rannsóknin var lögð fyrir nemendur í 9. og 10. bekk í öllum grunnskólum landsins á síðasta ári.

Kynningarfundurinn verður haldinn í félagsheimili KFUM og KFUK, Holtavegi 28, Reykjavík og hefst hann kl. 13:30. Gert er ráð fyrir að fundinum ljúki eigi síður en 16:00.

Menntamálaráðuneyti hefur staðið fyrir reglubundnum rannsóknum á högum barna og ungmenna frá árinu 1992 undir heitinu Ungt fólk í samstarfi við Rannsóknir og greiningu.

Fundurinn er öllum opinn.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum