Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Embætti skólameistara Menntaskólans á Ísafirði

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Menntaskólann á Ísafirði rann út föstudaginn 13. apríl sl.

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Menntaskólann á Ísafirði rann út föstudaginn 13. apríl sl. Menntamálaráðuneyti bárust þrjár umsóknir um stöðuna. Umsækjendur eru:

Agnes Karlsdóttir, framhaldsskólakennari,
Hildur Halldórsdóttir, framhaldsskólakennari og
Jón Reynir Sigurvinsson, aðstoðarskólameistari.

Miðað er við að menntamálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk, að fenginni tillögu hluteigandi skólanefndar, skv. 2. mgr. 11. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 80/1996 og sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum