Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menningarsamningur við Eyþing, samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra

Í dag, 27. apríl 2007, var á Húsavík undirritaður samningur um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 16 sveitarfélög á Norðurlandi eystra um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Björn Ingimarsson formaður sveitarfélaganna í Eyþingi
Undirritun menningarsamnings við Eyþing

Í dag, 27. apríl 2007, var á Húsavík undirritaður samningur um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 16 sveitarfélög á Norðurlandi eystra um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirritaði samninginn f.h. ríkisins en Björn Ingimarsson, formaður sveitarfélaganna í Eyþingi, undirritaði samninginn fyrir hönd sveitarfélaganna. Er þetta í fyrsta sinn sem gengið er til slíks samstarfs við Norðurland eystra en áður hefur verið gengið til samstarfs við Austurland árið 2001 og Vesturland árið 2005 með sambærilegum hætti.

Tilgangur menningarsamningsins er að efla menningarstarf á Norðurlandi eystra og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaganna við slíkt starf í einn farveg. Jafnframt eru áhrif sveitarfélaga á forgangsröðun verkefna aukin. Menningarráð Eyþings sem skipað verður 7 fulltrúum, þremur austan Vaðlaheiðar og þremur vestan hennar auk fulltrúa Háskólans á Akureyri, verður samstarfsvettvangur sveitarfélaganna og hefur meðal annars það hlutverk að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, úthluta fjármagni til menningarverkefna og verkefna á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu á Norðurlandi eystra jafnframt því að annast framkvæmd samningsins. Menningarráðið hefur að auki það hlutverk að samræma aðgerðir á sviði menningarmála á Norðurlandi eystra, skv. sérstökum samstarfssamningi þar um.

Framlög ríkisins til samningsins verða 25 m.kr. á árinu 2007, 30 m.kr. árið 2008 og 31 m.kr. árið 2009 en sveitarfélögin leggja jafnframt fram fé til sameiginlegra verkefna hvort heldur er með framlögum frá einkaaðilum eða með eigin framlögum. Skal við það miðað að árið 2008 nemi framlag sveitarfélaganna a.m.k. 17,5% af þeirri heildarfjárhæð sem veitt er til verkefnastyrkja og 25% árið 2009. Þá skulu sveitarfélögin greiða að lágmarki þriðjung kostnaðar vegna starfsemi Menningarráðsins árið 2008 og helming kostnaðar árið 2009. Gildistími samningsins er til ársloka 2009.

Samninginn er að finna á vef menntamálaráðuneytis, menntamalaraduneyti.is, vef samgönguráðuneytis, samgonguraduneyti.is og á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum