Hoppa yfir valmynd
3. maí 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samningur menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 14 sveitarfélög á Suðurlandi um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu

Í gær, 2. maí 2007, var á Eyrarbakka undirritaður samningur um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 14 sveitarfélög á Suðurlandi um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu.

Í gær, 2. maí 2007, var á Eyrarbakka undirritaður samningur um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 14 sveitarfélög á Suðurlandi um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirritaði samninginn f.h. ríkisins en Gunnar Þorgeirsson, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, undirritaði samninginn fyrir hönd sveitarfélaganna. Er þetta í fyrsta sinn sem gengið er til slíks samstarfs við Suðurland en áður hafa verið gerðir sambærilegir samningar við Austurland , Vesturland, Norðurland eystra, Norðurland vestra og Vestfirði.

Tilgangur menningarsamningsins er að efla menningarstarf á Suðurlandi og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaganna við slíkt starf í einn farveg. Jafnframt eru áhrif sveitarfélaga á forgangsröðun verkefna aukin. Menningarráð Suðurlands, sem skipað verður fimm fulltrúum, verður samstarfsvettvangur sveitarfélaganna og hefur meðal annars það hlutverk að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, úthluta fjármagni til menningarverkefna og verkefna á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu á Suðurlandi, jafnframt því að annast framkvæmd samningsins. Menningarráðið hefur að auki það hlutverk að samræma aðgerðir á sviði menningarmála á Suðurlandi, skv. sérstökum samstarfssamningi þar um.

Framlög ríkisins til samningsins verða 30 m.kr. á árinu 2007, 35 m.kr. árið 2008 og 36 m.kr. árið 2009 en sveitarfélögin leggja jafnframt fram fé til sameiginlegra verkefna hvort heldur er með framlögum frá einkaaðilum eða með eigin framlögum. Skal við það miðað að árið 2008 nemi framlag sveitarfélaganna a.m.k. 17,5% af þeirri heildarfjárhæð sem veitt er til verkefnastyrkja og 25% árið 2009. Þá skulu sveitarfélögin greiða að lágmarki þriðjung kostnaðar vegna starfsemi Menningarráðsins árið 2008 og helming kostnaðar árið 2009. Gildistími samningsins er til ársloka 2009.

Samninginn er að finna á vef menntamálaráðuneytis, menntamalaraduneyti.is, vef samgönguráðuneytis, samgonguraduneyti.is og á vef Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum