Hoppa yfir valmynd
3. maí 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menningarsamningur við 10 sveitarfélög á Vestfjörðum

Þriðjudaginn 1. maí 2007, var á Staðarflöt í Hrútafirði undirritaður samningur um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 10 sveitarfélög á Vestfjörðum um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu.

Þriðjudaginn 1. maí 2007, var á Staðarflöt í Hrútafirði undirritaður samningur um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 10 sveitarfélög á Vestfjörðum um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra undirritaði samninginn f.h. ríkisins en Anna Guðrún Edvardsdóttir, formaður sveitarfélaganna í Fjórðungssambandi Vestfirðinga, undirritaði samninginn fyrir hönd sveitarfélaganna. Er þetta í fyrsta sinn sem gengið er til slíks samstarfs við sveitarfélög á Vestfjörðum en áður hefur verið gengið til samstarfs við sveitarfélög í öðrum landshlutum með sambærilegum hætti.

Tilgangur menningarsamningsins er að efla menningarstarf á Vestfjörðum og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaganna við slíkt starf í einn farveg. Jafnframt eru áhrif sveitarfélaga á forgangsröðun verkefna aukin. Menningarráð Vestfjarða, sem skipað verður 7 fulltrúum, verður samstarfsvettvangur sveitarfélaganna og hefur meðal annars það hlutverk að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, úthluta fjármagni til menningarverkefna og verkefna á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu á Vestfjörðum, jafnframt því að annast framkvæmd samningsins. Menningarráðið hefur að auki það hlutverk að samræma aðgerðir á sviði menningarmála á Vestfjörðum, skv. sérstökum samstarfssamningi þar um.

Framlög ríkisins til samningsins verða 30 m.kr. á árinu 2007, 32 m.kr. árið 2008 og 33 m.kr. árið 2009 en sveitarfélögin leggja jafnframt fram fé til sameiginlegra verkefna hvort heldur er með framlögum frá einkaaðilum eða með eigin framlögum. Skal við það miðað að árið 2008 nemi framlag sveitarfélaganna a.m.k. 17,5% af þeirri heildarfjárhæð sem veitt er til verkefnastyrkja og 25% árið 2009. Þá skulu sveitarfélögin greiða að lágmarki þriðjung kostnaðar vegna starfsemi Menningarráðsins árið 2008 og helming kostnaðar árið 2009. Gildistími samningsins er til ársloka 2009.

Samninginn er að finna á vef menntamálaráðuneytis, menntamalaraduneyti.is, vef samgönguráðuneytis, samgonguraduneyti.is og á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum